Return to site

Skólaslit

Skráning hafin fyrir haustið.

TAKK FYRIR VORÖNNINA!!!

Vorönn 2016 lauk nú í síðustu viku þegar að Kvennakórinn okkar hélt stórglæsilega tónleika í Laugarneskirkju á þriðjudag og síðan kláraði framhaldshópurinn námskeiðið sitt á miðvikudaginn, sem var í raun framhaldsnámskeið af framhaldsnámskeiðinu :) 

Þessi önn er búin að vera virkilega viðburðarrík, margir frábærir söngvarar búnir að fara í gegnum námskeiðin og mikill árangur hefur sést í öllum hópunum. Einnig hafa margir droppað inn í einkatíma, allt frá stökum tíma uppí 15 tíma á önninni. Kvennakórinn blómstrar og mikil framför hefur orðið hjá kórskvísunum (þó ég segi sjálf frá). Það var gríðarlega vel mætt á vortónleikana og vorum við virkilega stoltar af okkur að þeim loknum. (Við erum einmitt að fara að hittast núna á eftir til að fagna....vúhúúú :) ) Teknar verða inn nýjar raddir í haust og verða inntökuprufur auglýstar á ágúst.

broken image

Nú verður ljúft að fara í smá sumarfrí frá kennslunni og hlaða batteríin fyrir næsta haust. Það verður mjög margt á döfunni á næstu önn. Við höldum áfram með okkar hefbundnu Grunn-framhalds og unglinganámskeið. En nú ætlum við að gefa ennþá yngri söngvurum kost á að vera með í gleðinni og boðið verður uppá nýtt námskeið fyrir 8-12 ára. Námskeiðið byggist mikið upp á kórastarfi en einnig fá krakkarnir tækifæri til að syngja einir fyrir framan hina. Þannig þjálfast þau í framkomu og að auka sjálfsöryggið.

Einnig fer að stað nýtt námskeið sem er sérsniðið að þörfum kórsöngvarans, þar sem tvinnað verður saman kennsla í raddbeitingu og undirstöðuatriðunum í tónfræði og nótnalestri. Námskeiði verður auglýst mjög fljótlega. 

Ég vil svo biðja ykkur sem hafa áhuga á að syngja og semja ykkar einin lög (singer/songwriter) að taka frá dagana 11. og 12 október. Þá mun koma gestakennari, hinn finnski Jussu Pöyhönen og ætlar hann að halda námskeið í lagasmíði. Það er svo mikill fjársjóður að geta boðið uppá erlenda gestakennara og að fá innblástur frá þessum frábæru listamönnum. Námskeiðið verður auglýst í ágúst, fylgist vel með því :)

broken image

Byrjað er að taka við skráningum fyrir næsta haust þannig að það er um að gera að vera snemma í að skrá sig til að tryggja sér pláss næsta vetur.

Vocalist þakkar kærlega fyrir frábæra önn og óskar öllum gleðilegs sumars. 

Hlýjar kveðjur til ykkar!

Solla

broken image